Brauðbær sér um veisluna þína
.jpg&ext=jpg&w=170&h=112)
.jpg&ext=jpg&w=170&h=112)
STERK HEFÐ OG NÝBREYTNI
Brauðbær sérhæfir sig í dönsku smurbrauði og pinnamat. 40 ára reynsla og fagmennska tryggir gæði veisluþjónustu okkar - vertu viss um að fá fyrsta flokks veitingar í veisluna þína.
Smurbrauðsstofan Brauðbær á Hótel Óðinsvé hefur verið starfrækt allt frá árinu 1964. Brauðbær byggir á hinum hefðbundna danska smurbrauðsskóla Oskars Davidsen og Idu Davidsen í Kaupmannahöfn og hefur ávallt svarað kröfum tímans um nýbreytni og þjónustu. Brauðbær vinnur aðeins með það besta hráefni sem völ er á og hefur starfsfólk sem býr yfir mikilli hæfni.
Hægt er að panta og sækja eða við sendum og leggst þá sendingakostnaður við pöntunina. Gott er að panta tímalega en það er mögulegt að fá afgreitt samdægurs ef pantað er fyrir hádegi.
Pöntunarsíminn er 552 0490 eða 511 6200, við getum einnig aðstoðað við val á snittum og veitt ráðgjöf fyrir veislur.
Opnið mánudaga til föstudaga frá kl.8-16
Smurða brauðið okkar er tilvalið í veisluna eða á fundinn:
KAFFISNITTUR henta vel í kaffiboð, með kökum, tertum og þess háttar. Þær eru hringlaga og þríhyrndar, smurðar á franskbrauð og malt-rúgbrauð. Hægt er að skoða lista yfir álegg á Kaffisnittum.
Algengt magn eru 2-3 snittur á mann.
MATARSNEIÐAR henta einkar vel fyrir hádegisfundi, eða sem máltíð einar og sér. Þær eru á franskbrauði eða malt-rúgbrauði, eftir því sem við á. Hægt er að skoða lista yfir álegg á Matarsneiðum.
Algengt magn eru 2-3 sneiðar á mann.
CANAPÉ SNITTUR eru hringlaga og eru vinsælar í hanastélsboð, því diskar eru óþarfir. Þær eru á baguette og franskbrauði. Hægt er að skoða lista yfir álegg á Canapé snittum.
Algengt magn á einstakling í tveggja klst. boð er 6-8 stk.
Brauðbær á Hótel Óðinsvé er einnig með veisluþjónustu sem hægt er að hafa samband við í síma 511 6677 eða braudbaer@braudbaer.is. Frekari upplýsingar um Brauðbæ á www.braudbaer.is
SMURT BRAUÐ
Canapé snittur 175 kr. Kaffisnittur 220 kr. Matarsneiðar 1090 kr. Partísamlokur 1/4 175 kr.
| |
|
BRAUÐTERTUR
Brauðtertur - 12 manna 6.500 kr. Brauðtertur - 16 manna 7.900 kr. Brauðtertur - 20 manna 9.500 kr. Brauðtertur - 30 manna 13.500 kr.
Brauðtertur þarf að panta með 1 sólahrings fyrirvara. Þær geta verið með laxi, rækjum eða skinku. | |
The Rooms
Our 43 rooms, including 8 double deluxe/junior suites, are all luxurious and nicely furnished. Our rooms include shower, minibar, complimentary coffe and tea, free wireless internet connection, satilite TV, radio, telephone hair dryer and other small things to make life easier.
A good night's sleep
While in the center of Reykjavik, Hotel Óðinsvé is a quiet place to dwell. And to assure a good night sleep for our guests, we have equipped our rooms with high quality beds and premium duvets and pillows from the quality producer Kroneborg of Denmark.